Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Við upphaf skóla

19. ágúst 2004

Orðsending frá lögreglustjóranum í Reykjavík við upphaf skólaárs grunnskóla

Lögreglan vill koma þeim tilmælum til ökumanna að þeir gæti sérstakrar varúðar í umferðinni á næstunni. Mörg þúsund grunnskólabörn munu mæta í skólann. Mikilvægt er að sýna þeim aðgát og tillitssemi í umferðinni. Flestir grunnskólar í Reykjavík, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi verða settir mánudaginn 23. ágúst.

Lögreglan mun hafa aukið eftirlit við grunnskólana fyrstu daga skólaársins.