Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Vettvangsstjórn virkjuð vegna aðgerða í Grindavík

26. október 2026

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum verður á morgun með aðgerð sem miðar að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur virkjað vettvangsstjórn vegna þessa sem er að störfum í Grindavík.

Leitaraðgerð þessi er gerð í kjölfar áhættumatsvinnu sem lögreglustjóri ber ábyrgð á og er unnið er eftir.

Fjölmiðlum mun gefast tækifæri á myndatökum í fyrramálið þegar aðgerð er hafin. Frekari upplýsingar um það verða veittar síðar.