Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Vegna beinafundar í Kömbum

7. júlí 2021

Bein þau sem tekin voru til rannsóknar eftir að þau fundust í hraungjótu í Kömbum í gærkvöldi hafa nú verið skoðuð af sérfræðingi. Niðurstaðan er að ekki er um mannabein að ræða. Ásamt beinunum fundust inniskór af kvenmanni, nælonsokkar og brotnar glerflöskur. Munir þessir báru með sér að hafa legið í gjótunni um langan tíma.