Vasaþjófar á ferðinni
10. mars 2026
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við vasaþjófum sem eru á ferðinni í umdæminu um þessar mundir. Á annan tug mála hafa verið tilkynnt til lögreglu undanfarna daga þar sem símum, greiðslukortum, myndavélum og öðrum verðmætum var stolið af ferðamönnum á miðborgarsvæðinu, þ.e. við Hallgrímskirkju, á Skólavörðustíg og Laugavegi.

Vegna þessa hefur lögreglan aukið eftirlit á svæðinu.