Varúð! Svikasmáskilaboð með innheimtu ófullbúinna bifreiðagjalda í dreifingu
18. september 2026
Lögreglan varar við smáskilaboðum sem eru að berast einstaklingum í nafni Skattsins. Í skilaboðunum kemur fram að kerfisendurskoðun bifreiða sýni ófullbúna stöðu upp á 3.450 ISK.

Í skilaboðunum segir að einstaklingar þurfi að ljúka uppgjöri innan 48 klukkustunda til að koma í veg fyrir skráningartakmarkanir og vísað er á svikavefslóð frá „Skattinum“.
Lögreglan biður einstaklinga um að ýta ekki á vefslóðina né annað sem tengist skilaboðunum.
Mikilvægt er að skoða öll skilaboð og allan póst með gagnrýnum augum, ekki smella á hlekki eða viðhengi sem eru grunsamleg og alls ekki gefa upp kortaupplýsingar eða viðkvæmar persónuupplýsingar.