Varúð! Svikapóstar í nafni lögreglu og ríkislögreglustjóra
26. ágúst 2026
Embætti ríkislögreglustjóra berast nú tilkynningar um tölvupóst þar sem lögregla er ranglega titluð sem sendandi. Í póstinum er fylgiskjal sem er ranglega merkt ríkislögreglustjóra, „Innanríkaráðuneytið“ undir stjórn „Dómslögreglu“.

Í fylgiskjali póstsins kemur fram að efni hans sé opinber tilkynning og upphaf dómsmáls í tengslum við kynferðisbrot og netglæpi og er Halla Bergþóra Björnsdóttir ríkislögreglustjóri ranglega sögð sendandi.
Við vekjum athygli á því að skilaboðin eru ekki frá ríkislögreglustjóra eða lögreglu og viljum við vara fólk við að svara tölvupóstinum og við því að ýta á hlekki og viðhengi sem geta fylgt svikapóstum sem þessum.
Mikilvægt er að skoða öll skilaboð og allan póst með gagnrýnum augum, ekki smella á hlekki eða viðhengi sem eru grunsamleg og alls ekki gefa upp kortaupplýsingar eða viðkvæmar persónuupplýsingar.
Við vekjum athygli á góðri fræðslu á heimasíðu CERT IS um vefveiðar sem þessar: https://cert.is/frettir-og-utgefid-efni/fraedsla/helstu-tegundir-vefveida/
Hér má sjá dæmi um svikapóst:
