Varúð! Svikapóstar í nafni lögreglu og dómsmálaráðuneytisins
30. janúar 2026
Embætti ríkislögreglustjóra berast nú tilkynningar um tölvupóst þar sem lögreglan og dómsmálaráðuneytið eru ranglega titluð sem sendandi og skilaboðin sögð varða dómsmál.

Í tölvupóstinum er talað um dómsmál vegna netbrota og er nafn fyrrverandi ríkislögreglustjóra notað sem sendandi skilaboðanna í nafni ríkislögreglustjóra, lögreglu og dómsmálaráðuneytisins.
Við vekjum athygli á því að skilaboðin eru ekki frá lögreglu né dómsmálaráðuneytinu og viljum við vara fólk við að svara tölvupóstinum og við því að ýta á hlekki og viðhengi sem geta fylgt svikapóstum sem þessum.
Mikilvægt er að skoða öll skilaboð og allan póst með gagnrýnum augum, ekki smella á hlekki eða viðhengi sem eru grunsamleg og alls ekki gefa upp kortaupplýsingar eða viðkvæmar persónuupplýsingar.
Við vekjum athygli á góðri fræðslu á heimasíðu CERT um vefveiðar sem þessar: Vefveiðar (cert.is)
Hér má sjá dæmi um svikapóst:
