Varað við þjófum á miðborgarsvæðinu
28. mars 2025
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við þjófum sem hafa verið á ferðinni á miðborgarsvæðinu undanfarna daga.

Þeir eru sagðir vera erlendir ríkisborgarar og herja á ferðamenn og hafa borist tilkynningar um slík mál við Hallgrímskirkju og nágrenni hennar. Þjófarnir eru gjarnan tveir eða fleiri hverju sinni og stela m.a. úr vösum, töskum og bakpokum fólks, bæði á almannafæri og gististöðum. Sjálfir eru þeir klæddir eins og ferðamenn, ef svo má segja, og eru líka með bakpoka meðferðis.
Talið er að sömu þjófar hafi nýlega verið á þekktum ferðamannastöðum á Suðurlandi og stolið þar með sama hætti. Þar dreifðu þeir t.d. athygli ferðamanna með því að bjóðast til að taka af þeim myndir, en meðan á því stóð létu þjófarnir greipar sópa.
Þau sem kunna að búa yfir einhverjum upplýsingum um þessa þjófa, t.d. mögulegan dvalarstað þeirra, eru beðin um að koma þeim á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is