Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Varað við auglýsingu um gám til sölu

20. maí 2025

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við söluauglýsingu á gámi sem er á fjölda sölusíðna inn á Facebook.

Þar á meðal inni á hópunum:

  • Húsgögn til sölu – Furniture for sale

  • Sunnlendingar með til sölu eða gefins

  • Bílaendursalan Ódýrir bílar til sölu 0 til 500 þúsund

  • Dekkjamarkaðurinn

  • Lottan Akureyri – Vörur til sölu

  • Þjónusta við íbúa Suðurnesja

Gámurinn er sagður vera 20 feta og einangraður, söluverðið nemur kr. 300.000 m/vsk. og afhendingu.

Söluaðili sendir kaupanda reikning frá fyrirtæki sem er málinu óviðkomandi og setur bankaupplýsingar einstaklings sem móttekur fjármunina inn á sölureikninginn. Gámurinn er svo í framhaldinu ekki afhentur kaupanda.

Lögregla hefur þegar móttekið 5 mál síðustu vikuna þar sem fjármunir kaupanda hafa tapast.