Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Varað er við ferðum inn á Fagradalsfjall vegna slæmrar veðurspár næstu 48 klukkustundir

27. október 2025

Lögreglan á Suðurnesjum vara við ferðum fólks inn á gönguleiðir við Fagradalsfjall næstu tvo sólarhringa vegna mjög óhagstæðrar veðurspár. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er búist við allhvössum vindi, talsverðri úrkomu í formi snjókomu eða slyddu á svæðinu og versnandi skyggni. Aðstæður á svæðinu geta breyst hratt og orðið hættulegar á skömmum tíma. Gul veður viðvörun hefur verið gefin út.

Ferðamönnum og göngufólki er eindregið ráðlagt að fresta ferðum inn á svæðið næstu tvo daga Einnig er áréttað að svæðið er varasamt, og leitar- og björgunaraðgerðir á svæðinu geta verið afar erfiðar við slíkar aðstæður sem geta myndast.

Lögreglan á Suðurnesjum fylgjast náið með þróun veðurs og aðstæðum á svæðinu. Nánari upplýsingar verða birtar ef tilefni gefst til.

Óvissustig Almannavarna er í gildi á svæðinu vegna jarðhræringa og landriss sem gæti leitt til eldgoss.

Fólk er hvatt til að fylgjast með tilkynningum á eftirfarandi stöðum:

  1. www.vedur.is

  2. www.umferdin.is

  3. www.safetravel.is

  4. Á fésbókarsíðu Lögreglunnar á Suðurnesjum