Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Úr sögu lögreglunnar

1. mars 2025

Bifhjól hafa mjög lengi komið við sögu hjá lögreglunni, eða allt frá því á fyrri hluta síðustu aldar.

Nokkru seinna var svo sérstök umferðardeild lögreglunnar sett á fót, en tilkynnt var um stofnun hennar á fundi yfirstjórnar lögreglunnar í Reykjavík þann 16. júní 1960. Aðaluppistaða deildarinnar var bifhjólasveit lögreglunnar, svo og lögregluþjónar á öðrum vélknúnum farkosti eftir því sem aðstæður leyfðu. Stofnun umferðardeildar vakti nokkra athygli en um málið var fjallað í einu dagblaðanna 21. júní 1960.

„Vísi bárust frétttir af að búið væri að stofna nýja deild, svokallaða umferðardeild, innan lögreglunnar. Eru í deildinni menn með 3 bíla og 8 mótorhjól. Aðsetur deildarinnar er í einum af skálunum í skátaheimili og telja þeir það mjög heppilegan stað fyrir starfsemi sína. Starfið hefst á hverjum morgni kl. 10, og er þá allt sett á stað, hvert mótorhjól fær sitt hverfi, en þau eru 8 alls sem fyrr segir og eru bílarnir þeim til aðstoðar. Einnig tekur einn bíllinn hverfi alveg, bili eitthvert mótorhjólanna. Vaktirnar eru 3 og sömu mótorhjólin alltaf notuð en sérstaka þjálfun þarf í meðferð þeirra, sérstaklega hinna stærri.“

Meðfylgjandi eru nokkrar gamlar myndir af bifhjólamönnum lögreglunnar, en sú yngsta var tekin snemma á níunda áratugnum. Á henni má sjá Guðbrand Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjón í umferðardeild, en hann var að láta af störfum í lögreglunni eftir 45 ára feril.