Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Upplýsingar vel þegnar.

1. febrúar 2006

Meðfylgjandi myndir eru úr eftirlitsmyndavél Happdrættis Háskólans að Tjarnargötu 4. Þær eru teknar kl. 11:54 mánudaginn 30. janúar s.l.

Myndirnar sýna m.a. ungan mann í bláleitum samfestingi með hettu, í hvítum skóm með svörtum röndum, með svarta og hvíta hanska á höndum og með svört sólgleraugu. Hann gekk að kassa innan við afgreiðsluborð og tók þaðan peninga áður en hann hljóp á braut. Reiðhjól, sem maðurinn hafði komið á, var skilið eftir utan við dyrnar.

Ef einhver kannast við fatnaðinn; samfestinginn, hanskana og/eða skóna, eða jafnvel unga manninn á myndunum er sá hinn sami vinsamlegast beðinn að hafa samband við lögregluna í Reykjavík (sími: 843 1213 eða tölvunetfang: gisli.skulason@lr.is). Einnig ef einhver kannast við reiðhjólið.