Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umferðarslys á Breiðamerkursandi.

1. mars 2009

Um kl. 09:30 var tilkynnt til lögreglunnar á Höfn um að alvarlegt umferðarslys hefði orðið á Breiðamerkursandi skammt austan við Jökulsárlón. Um var að ræða fimm einstaklinga af erlendum uppruna.

Fólksbifreið var ekið út af veginum í hálku og fór bifreiðin eina og hálfa veltu. Tveir aðilar voru fastir í bifreiðinni þegar lögregla og sjúkralið kom á vettvang. Greiðlega gekk að ná þeim út.

Ökumaðurinn hlaut höfuðáverka, og var fluttur með sjúkrabifreið á Kirkjubæjarklaustur og með þyrlu LGH þaðan til Reykjavíkur. Aðrir úr bifreiðinni voru fluttir til Hafnar til frekari aðhlynningar.