Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umferðaróhapp á tjaldstæðinu á Patreksfirði.

4. júní 2010

Á fimmta tímanum í morgun var lögregla og sjúkralið kölluð að tjaldstæði á Patreksfirði. Þar hafði bifreið verið bakkað á eða yfir lítið tjald sem þar var. Tveir erlendir ferðamenn voru sofandi í tjaldinu þegar atvikið átti sér stað. Þeir voru fluttir á sjúkrahúsið á Patreksfirði en reyndust ekki alvarlega slasaðir. Ökumaður bifreiðarinnar, sem einnig var í tjaldi á þessu sama tjaldstæði, er grunaður um ölvun við akstur. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöðina.

Annar maður var handtekinn snemma í morgun á Patreksfirði. Sá hafði verið ölvaður og með ólæti. Hann var látinn sofa úr sér áfengisvímuna áður en hann var látinn laus. Að öðru leyti fór allt friðsamlega fram á Patreksfirði, en þar er nú töluverður mannfjöldi samankominn vegna hátíðarhaldanna í tengslum við Sjómannadaginn.