Þessi frétt er meira en árs gömul
Umferðareftirlit – 280 ökumenn stöðvaðir
12. janúar 2016
Tvö hundruð og áttatíu ökumenn voru stöðvaðir á miðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður og á hinn sami ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.