Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Umfangsmikil rannsókn – sex í gæsluvarðhaldi

23. september 2026

Sex voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær eftir að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðist í viðamiklar aðgerðir í umdæminu í þágu rannsóknar hennar á fíkniefnamisferli og peningaþvætti.

Framkvæmdar voru húsleitir og handtökur á nokkrum stöðum og lagt var hald á bæði fjármuni og fíkniefni. Sex voru síðan úrskurðaðir í gæsluvarðhald eins og áður sagði, og nær það til föstudags, en hinir sömu eru allir Íslendingar.

Rannsókn málsins er mjög umfangsmikil, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.