Umfangsmikil fíkniefnamál - lagt hald á 53 kg af hassi og 9 lítra af kókaínvökva
3. desember 2025
Tvö umfangsmikil fíkniefnamál eru nú til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en í öðru þeirra var lagt hald á 53 kg af hassi en í hinu 9 lítra af kókaínvökva. Hassið og kókaínvökvinn var falið í sitthvorri bifreiðinni, sem báðar komu til Seyðisfjarðar með farþegaskipinu Norröna um miðjan síðasta mánuð.

Bifreiðunum var þá fylgt eftir og síðan voru fjórir handteknir í framhaldinu, þ.e. báðir bílstjórarnir og tveir menn sem veittu varningnum mótttöku. Um tvö aðskilin mál er að ræða, einn var handtekinn í öðru þeirra og þrír í hinu. Mennirnir eru allir erlendir ríkisborgarar og virðast ekki hafa nein tengsl við Ísland. Þeir hafa allir setið í gæsluvarðhald frá því málin komu upp, en það rennur út í þar næstu viku. Bæði málin eru afrakstur mjög góðrar samvinnu lögregluliðanna á höfuðborgarsvæðinu og Austurlandi og Tollgæslunnar. Embættin nutu jafnframt aðstoðar lögreglunnar á Norðurlandi eystra og sérsveitar ríkislögreglustjóra við aðgerðir í fyrrnefndum málum.
Ástæða er líka til að nefna þrjú önnur fíkniefnamál á árinu þar sem góð samvinna lögregluliðanna og Tollgæslunnar leiddi til þess að fíkniefni sem voru flutt til landsins með farþegaskipinu Norröna fundust við tolleftirlit og voru haldlögð, en þar var samtals um að ræða 10 kg af kókaíni, 15 kg af ketamíni og 5 kg af MDMA.
Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um.