Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Umfangsmikið fíkniefnamál – fjórir í gæsluvarðhaldi

29. apríl 2026

Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli, sem snýr að innflutningi á rúmlega 14 lítrum af amfetamínbasa. Þrír þeirra voru handteknir í viðamiklum aðgerðum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Tollgæslunnar um miðjan mánuðinn líkt og áður hefur komið fram, en sá fjórði var handtekinn í síðustu viku.

Varðhaldið yfir þeim síðastnefnda hefur verið framlengt til 5. maí á grundvelli rannsóknarhagsmuna og sama gildir um einn af þessum þremur sem áður voru nefndir. Gæsluvarðhaldið yfir honum var líka framlengt til 5. maí vegna rannsóknarhagsmuna. Hinum tveimur hefur sömuleiðis verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, en nú á grundvelli almannahagsmuna til 25. maí. Fjórmenningarnir, sem eru íslenskir, eru á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri.