Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Um vopnaburð á almannafæri

27. mars 2026

Nokkur viðbúnaður varð fyrr í vikunni á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík þegar þangað kom maður vopnaður haglabyssu. Líkt og ávallt þegar sést til vopnaðra manna á almannafæri voru vopnaðir lögreglumenn sendir í málið, en blessunarlega reyndist viðkomandi ekki hafa neitt illt í hyggju heldur hugðist hann skila vopninu inn til förgunar.

Lögreglan vill minna á að vopnaburður á almannafæri er bannaður hérlendis. Þó er líkt og segir í vopnalögum heimilt að bera á sér bitvopn „þar sem eðlilegt og sjálfsagt getur talist, svo sem við vinnu eða veiðar.“ Í vopnalögum er jafnframt sérstaklega kveðið á um að við „burð og flutning“ skotvopna skuli þau vera „óhlaðin og í umbúðum“. Þannig eru byssutöskur og pokar ekki aðeins til hagræðis fyrir skotvopnaeigendur heldur beinlínis skylda ef fara á með vopnin milli staða. Þetta gildir líka þegar ferðast er með skotvopn í ökutækjum eða öðrum farartækjum.

Ef skila á skotvopnum inn til förgunar fer best á því að þeim sé skilað beint inn til leyfaþjónustu embættisins, en gera þá boð á undan sér með því að hringja í síma 444 1000.