Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tveir létust í umferðarslysi á Reykjanesbraut

28. mars 2003

Föstudaginn 28. mars 2003

Kl. 06:29 var tilkynnt um alvarlegt umferðarslys á Reykjanesbraut á Strandarheiði skammt austan Vogaafleggjara.

Fólksbifreið á leið til Reykjavíkur lenti á vinstra framhorni lítillar fólksflutningabifreiðar og síðan á fólksbifreið sem á eftir henni kom. Ökumenn fólksbifreiðanna, 25 og 56 ára gamlir karlmenn, létust og einn farþegi hlaut mikil meiðsl.

Farþegar í fólksflutningabifreiðinni, átta talsins, sluppu með minni háttar meiðsli að talið er.

Ekki er að fullu ljóst með tildrög slyssins og biður Lögreglan í Keflavík þá sem voru vitni af slysinu að hafa samband í síma 4202461 eða 4202400.