Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tveimur mönnum refsað fyrir að kaupa áfengi fyrir ungmenni.

12. október 2004

Nú nýlega hafa tveir menn greitt sekt hjá lögreglustjóranum á Ísafirði, fyrir að hafa keypt áfengi fyrir ungmenni sem ekki voru komin með aldur til þess. Um er að ræða tvö óskyld mál, en í báðum tilvikunum var um að ræða ungmenni sem voru börn í skilningi barnaverndarlaga, eða yngri en 18 ára.

Mennirnir hafa greitt hvor um sig 10.000.- kr. sekt vegna þessara brota á áfengislögum.

Lögreglan vill aðvara þá sem hyggjast kaupa áfengi fyrir þau ungmenni sem ekki hafa aldur til meðhöndlunar áfengis. Áfengislögin, sem eru nr. 75/1998, eru skýr um þetta atriði. En þar segir eftirfarandi í 18. grein : “Óheimilt er að selja, veita eða afhenda áfengi þeim sem er yngri en 20 ára.”