Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tólf teknir fyrir ölvunarakstur

10. ágúst 2010

Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Tveir voru teknir á laugardag, níu á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru átta karlar á aldrinum 19-58 ára og fjórar konur, 21-69 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.