Tíundi maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald
13. nóvember 2026
Erlendur ríkisborgari var í fyrrakvöld í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 9. desember, á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innflutningi 106 kg af kókaíni til Íslands sl. sumar. Maðurinn, sem var handtekinn í Rúmeníu og framseldur hingað, er sá tíundi sem sætir gæsluvarðhaldi í málinu. Hinir níu, þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar, eru enn í haldi.
