Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tímabundið bann við drónaflugi til kl. 17

4. september 2019

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið tímabundið bann við drónaflugi yfir Höfða í Borgartúni og nágrenni, en bannsvæðið afmarkast af Sæbraut, Kringlumýrarbraut, Laugavegi og Snorrabraut líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd. Bannið, sem gildir til kl. 17 í dag, gildir líka um strandlengjuna norðan Sæbrautar. Ákvörðunin er í samræmi við reglugerð um starfrækslu fjarstýrðra loftfara.