Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tilmæli vegna flugeldasýningar í Grafarvogi

9. september 2006

Svokallaður Grafarvogsdagur stendur nú yfir en honum lýkur með flugeldasýningu klukkan 22:00 í kvöld. Vitað er að hross geta fælst við flugelda og því biður lögreglan í Reykjavík bæði hestamenn og vegfarendur að vera á varðbergi.

Gott væri ef eigendur hrossa gætu aðgætt að girðingar væru í lagi. Eins þurfa vegfarendur, sem eiga leið um þar sem hestar eru í nágrenninu, að sýna aðgát.