Tilkynnt tilvik heimilisofbeldis til lögreglu fyrstu 6 mánuði ársins 2025
11. september 2025
Lögreglan á landsvísu fékk 612 tilkynningar um heimilisofbeldi á tímabilinu janúar 2025 til og með júní 2025 sem jafngildir um 102 slíkum tilvikum á mánuði að meðaltali. Tilvik á árinu voru 5% fleiri samanborið við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára á undan.

Ný skýrsla ríkislögreglustjóra um tilkynningar til lögreglu um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra/tengdra aðila fyrir tímabilið janúar til og með júní 2025 hefur verið birt á vefsvæði lögreglunnar
Helstu niðurstöður eru:
Tilkynningar um heimilisofbeldi voru 10% fleiri á árinu samanborið við sama tímabil og í fyrra.
Ofbeldi af hendi maka/fyrrum maka svipuð að fjölda og yfir sama tímabil í fyrra
Ofbeldi af hendi fjölskyldumeðlims gegn systkini, foreldri gegn barni og barn gegn foreldri fjölgar um 29% samanborið við sama tímabil og í fyrra.
Tilvik ofbeldis innan fjölskyldu fjölgar
Lögreglan skráir útköll um ágreining milli skyldra/tengdra aðila þar sem metið er að ekki sé grunur um brot. Alls voru 636 tilkynningar um ágreining milli skyldra/tengdra aðila, sem jafngildir að meðaltali um 106 slík tilvik á mánuði. Lítil breyting er á fjölda slíkra mála samanborið við meðaltal síðust þriggja ára, eða um 1%.
Þegar litið er til heimilisofbeldismála, þ.e. tilvika þar sem grunur er um brot á borð við líkamsárásir, hótanir eða eignaspjöll, voru tilvikin 612 eins og áður sagði.
Tilvik þar sem grunur var um heimilisofbeldi af hendi fjölskyldumeðlims gegn systkini, foreldri gegn barni og barn gegn foreldri voru 29% fleiri samanborið við sama tímabil og í fyrra. Hlutfallslega er mesta fjölgun tilvika ofbeldis milli systkina, eða rúmlega tvöföldun slíkra mála. Þar á eftir var 47% aukning tilvika ofbeldis af hendi foreldris í garð barns. Heimilisofbeldi af hendi maka eða fyrrum maka eru algengasta birtingarmynd heimilisofbeldis skráð hjá lögreglu og voru tilvikin 375, eða 2% færri tilvik en meðaltal síðustu þriggja ára.
Rafrænt eftirlit með nálgunarbanni og/eða brottvísun fyrirhugað
Fjöldi beiðna um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili hefur verið hlutfallslega lágur miðað við fjölda tilvika heimilisofbeldis tilkynnt til lögreglu. Á fyrsta hálfa árinu voru beiðnir um nálgunarbann og/eða brottvísun í 60 málum eða í 13% fleiri málum samanborið við meðaltal síðustu 3 ára á undan. Í skýrslunni er gefinn upp fjöldi mála þar sem var beiðni eða ákvörðun um nálgunarbann, og gat verið um að ræða fleiri en eina beiðni eða ákvörðun innan sama máls.
Dómsmálaráðherra hefur kynnt áform um breytingu á lögum nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili á samráðsgátt stjórnvalda. Helsta breytingin mun felast í að koma á rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, með þeim sakborningum sem sæta nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili, í þeim tilgangi að slíkri ákvörðun sé framfylgt. Mun frumvarpið byggja á samskonar löggjöf sem reynst hefur vel á Norðurlöndunum, á sérstaklega frá Noregi og Danmörku til að draga úr ítrekuðu heimilisofbeldi og umsáturseinelti.
Ætíð er hægt að tilkynna brot með því að hafa samband við 112. Á ofbeldisgátt 112.is má einnig finna nánari upplýsingar um þau úrræði sem standa til boða.
Skýrsluna í heild sinni má finna hér.
Heimilisofbeldi er skilgreint sem ofbeldi sem einstaklingur verður fyrir af hendi nákomins, þ.e. árásaraðili og árásarþoli eru skyldir, tengdir eða hafa sögu um tengsl og eru tilvikin ekki bundin við heimili fólks.
Útköll lögreglu þar sem ekki er grunur um brot eru skráð sem ágreiningur á milli skyldra og tengdra. Mikilvægt þykir að skrá bæði ágreining og heimilisofbeldi til að fá heildstæða mynd af tilvikum og hvort tilvik leiði til ítrekaðra og alvarlegri atvika.