Tilkynningum um kynferðisbrot fjölgar á milli ára
5. október 2026
Ný skýrsla ríkislögreglustjóra um tilkynningar til lögreglu um kynferðisbrot fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 hefur verið birt á vefsvæði lögreglunnar.

Á landsvísu voru 346 kynferðisbrot tilkynnt til lögreglu á tímabilinu janúar til júní. Hafa þau ekki verið fleiri á fyrri árshelmingi frá árinu 2021. Er það um 27% fjölgun samanborið við sama tímabil síðustu þrjú ár á undan. Ef aðeins er litið til ársins 2025 var um 21% fjölgun tilkynninga.
Það jafngildir að meðaltali tæplega 2 tilkynningum á dag, eða um 58 tilkynningum á mánuði. Það eru um 9 tilkynningar á hverja 10.000 íbúa, sem er svipað og árið 2022 en lægra en árin 2019 og 2021. Flest brot voru tilkynnt í maí, eða 77.
Fjöldi nauðgana óbreyttur
Lögreglan skráir bæði hvenær kynferðisbrotið átti sér stað og hvenær það var tilkynnt til lögreglu, þar sem í hluta mála líður langur tími þar á milli. Á fyrri árshelmingi var tilkynnt um 103 nauðganir til lögreglu og þar af 81 sem átti sér stað á tímabilinu. Fjöldi tilkynntra nauðgana er nánast óbreyttur frá árinu 2025, þegar þær voru 104. Þá voru þær um 14% fleiri en að meðaltali á sama tímabili síðustu þriggja ára þar á undan. Jafngildir það um 2,6 tilkynntum nauðgunum á hverja 10.000 íbúa, samanborið við um 2,7 árið 2025.
Fleiri stafræn kynferðisbrot
Tilkynningar um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot voru 93 og fjölgaði úr 58 árið 2025, 60% fjölgun. Samanborið við meðaltal síðustu þriggja ára er um 45% fjölgun. Hafa slíkar tilkynningar ekki verið fleiri á fyrri árshelmingi á því tímabili sem skýrslan nær til. Blygðunarsemisbrot voru 16 og hefur þeim fækkað ár frá ári frá árinu 2022, þegar þau voru 31.
Alls var tilkynnt um 72 kynferðisbrot gegn börnum, úr 62 árið 2025 sem er fjölgun um 16% . Samanborið við meðaltal síðustu þriggja ára er um 19% fjölgun.
Vændismálum fjölgar áfram
Tilkynningar um vændi voru 33 samanborið við 21 á sama tímabili árið 2025. Er það 57% fjölgun en brotin voru að meðaltali 14 árin 2023-2025. Tilkynningum um vændi hefur fjölgað ár frá ári á fyrri árshelmingi frá árinu 2022, þegar þær voru 4.
Helmingur brotaþola börn
Konur voru 85% brotaþola í öllum kynferðisbrotum sem tilkynnt voru til lögreglu. Hlutfallið var enn hærra þegar horft var til nauðgana, þar voru 93% brotaþola kvenkyns. Hlutföllin snúast við þegar kemur að kyni grunaðra, þar voru 92% karlkyns.
Töluverður aldursmunur var á milli brotaþola og grunaðra. Meðalaldur brotaþola var 23 ár á meðan meðalaldur grunaðra var 34 ár. Um 49% brotaþola voru undir 18 ára í öllum kynferðisbrotum á meðan 10% grunaðra voru undir 18 ára. Hlutfall brotaþola undir 18 ára í nauðgunarbrotum var 38%, samanborið við 33% á sama tímabili árið 2025.
Skýrsluna má finna hér.
Í ljósi fjölgunar stafrænna kynferðisbrota og hás hlutfalls barna meðal brotaþola munu ríkislögreglustjóri og lögregluembættin í samstarfi við fjölda stofnana og samtaka standa fyrir vitundarvakningu um stafrænt ofbeldi meðal barna og ungmenna í október.
Ætíð er hægt að tilkynna brot með því að hafa samband við 112. Sjá einnig leiðarvísi um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu á ofbeldisgátt 112.is.
Nánari upplýsingar veitir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, í síma 444-2570 eða helena.sturludottir@logreglan.is