Tilkynning vegna líkamsárásar sem er til rannsóknar
15. júní 2026
Klukkan 02:40 í nótt fékk lögreglan á Suðurnesjum beiðni um skjóta aðstoð vegna slagsmála utandyra við Valhallarbraut í Reykjanesbæ. Þegar lögregla kom á vettvang var fjöldi manns samankomin utandyra og fljótlega var óskað eftir frekari aðstoð viðbragðsaðila þar sem tilkynnt var um hnífaburð.

Þá kom í ljós að einn var með stungusár og annar til var með sár á hendi. Sérsveit ríkislögreglustjóra kom til aðstoðar á vettvang við leit af gerendum.
Þrír voru handteknir á vettvangi og bíða yfirheyrslu. Sá sem var stunginn er á spítala og er ekki í lífshættu. Lögreglan á Suðurnesjum mun fara fram á gæsluvarðhald í dag í þágu rannsóknar málsins sem er á frumstigi.