Tilkynning vegna leitaraðgerðar í Grindavík
27. október 2026
Í dag fer fram afmörkuð leitaraðgerð í Grindavík vegna Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í janúar 2024.

Um er að ræða sjónskoðun og leit með myndavél sem framkvæmd verður af sérhæfðum leitarmönnum sem munu síga niður í sprunguna. Aðstæður á vettvangi eru afar krefjandi og tekur öll framkvæmd mið af ítarlegu áhættumati sem unnið var í samstarfi innlendra og erlendra sérfræðinga. Vegna þessa er markmið leitaraðgerðar að kanna aðstæður á vettvangi en ekki björgun. Áhersla er lögð á að tryggja öryggi þeirra sem að aðgerðinni koma.
Ekki verða veittar upplýsingar um leitaraðgerðina á meðan á henni stendur en upplýsingar verða sendar á fjölmiðla um leið og þær liggja fyrir og aðstandendur hafa verið upplýstir.