Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi, – COVID-19

11. desember 2020

Enginn er með virkt COVID smit á Austurlandi.

Aðgerðastjórn minnir á aðvaranir sóttvarnalæknis um að staða COVID mála sé viðkvæm, sér í lagi nú með þeim ys og þys sem fylgir undirbúningi jóla. Hún hvetur því til að sá þröngi vegur sem framundan er verði fetaður af ýtrustu hægð og varúð. Þannig komumst við í sameiningu ósködduð yfir hátíðarhjallann sem bíður og inn í nýtt ár.

Njótum þess að eiga lágstemmdan og notalegan jólaundirbúning með okkar nánustu.