Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þrír með fölsuð skilríki

5. janúar 2016

Þrjú mál hafa komið upp hjá lögreglunni á Suðurnesjum á undanförnum dögum vegna framvísunar falsaðra skilríkja í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Einstaklingur framvísaði ísraelsku vegabréfi sem reyndist vera breytifalsað. Annar framvísaði breytifölsuðu ítölsku vegabréfi, svo og ólöglega útgefnu ítölsku kennivottorði. Þriðji aðilinn framvísaði einnig breytifölsuðum skilríkjum.

Málin eru öll komin í hefðbundið ferli.