Þessi frétt er meira en árs gömul
Þjófnaður í Ísafjarðardjúpi upplýstur.
29. október 2008
Lögreglan á Vestfjörðum hefur upplýst innbrot í mannlausa bifreið sem lagt var í vegkant í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi, að kveldi 9. október sl. Úr bifreiðinni var stolið ýmsum verðmætum. Í gær var par á Ísafirði handtekið vegna rannsóknar málsins og fannst hluti þýfisins í húsleit sem framkvæmd var á heimili þess. Málið telst upplýst.