Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þjófnaður á hraðbanka

21. ágúst 2025

Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn vegna gruns um að hafa átt þátt í þjófnaði á hraðbanka þar sem stórvirk vinnuvél var notuð við verknaðinn.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór fram á að maðurinn yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald en ekki var fallist á kröfuna.

Rannsóknin er á frumstigi og því er ekki hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Við biðjum fólk í Mosfellsbæ og við Hafravatn sem hafa eftirlitsmyndavélar að kanna hvort að þar leynist myndefni af umræddri vinnuvél á tímabilinu 03:30 – 06:00 aðfararnótt þriðjudagsins þann 19.8.sl. Þau sem geta gefið upplýsingar sem nýtast við rannsókn málsins eru beðin um að senda þær í 1315@lrh.is