Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þjófar sendir úr landi

7. janúar 2026

Tveimur erlendum ríkisborgurum, karli og konu, hefur verið vísað brott frá Íslandi samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar á grundvelli 1., sbr. 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Þeim var jafnframt bönnuð endurkoma til Íslands í fimm ár.

Fólkið, sem er á fertugs- og fimmtugsaldri, hafði dvalið á Íslandi um tveggja ára skeið og ítrekað komið við sögu lögreglu. Það var sakfellt í héraðsdómi sl. haust og í byrjun þessa árs fyrir fjölda brota gegn almennum hegningarlögum.