Þjófar sendir úr landi
31. mars 2026
Þremur erlendum ríkisborgurum hefur verið vísað frá Íslandi, en um er að ræða þrjá karla um tvítugt. Þeir voru allir handteknir á miðborgarsvæðinu eftir hádegi í gær í kjölfar tilkynninga um þjófnaði á svæðinu. Þremenningarnir voru færðir á lögreglustöð og við yfirheyrslur játuðu þeir sök. Mennirnir stálu fatnaði, sem var haldlagður og komið aftur í réttar hendur. Þeir höfðu dvalið á Íslandi í nokkra daga þegar málin komu upp í gær.

Ákvörðun um frávísun er skv. d.-lið 1. mgr. 94. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og voru mennirnir sendir úr landi um leið og hún lá fyrir.