Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þjófar sendir úr landi

23. mars 2026

Tveimur erlendum ríkisborgurum, körlum á þrítugs- og fertugsaldri, hefur verið vísað brott frá Íslandi samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar á grundvelli 1., sbr. 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Þeim var jafnframt bönnuð endurkoma til Íslands, öðrum í sjö ár og hinum í sex ár.

Mennirnir voru handteknir vegna þjófnaðarmála á höfuðborgarsvæðinu fyrr í mánuðinum, örfáum dögum eftir komuna til landsins. Þýfið fannst á dvalarstað þeirra, en við yfirheyrslu hjá lögreglu játuðu mennirnir sök. Talið er að tilgangur ferðarinnar til Íslands hafi verið að stunda brotastarfsemi hérlendis.