Þjófar sendir úr landi
11. desember 2025
Tveimur erlendum ríkisborgurum, karli og konu á þrítugsaldri, hefur verið vísað brott frá Íslandi samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar á grundvelli 1., sbr. 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Fólkið var handtekið 19. nóvember vegna þjófnaðarmála á höfuðborgarsvæðinu og sat í gæsluvarðhaldi frá 20. nóvember uns það var sent úr landi fyrr í vikunni. Fólkinu var jafnframt bönnuð endurkoma til Íslands í fimm ár.