Þjófar sendir úr landi
2. janúar 2026
Þremur erlendum ríkisborgurum, tveimur körlum og einni konu, hefur verið vísað brott frá Íslandi samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar á grundvelli 1., sbr. 2. mgr. 95. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Fólkið, sem er á þrítugs- og fertugsaldri og er talið tengjast skipulagðri brotastarfsemi, var handtekið 18. desember vegna þjófnaðarmála á höfuðborgarsvæðinu og sat í gæsluvarðhaldi frá 19. desember uns það var sent úr landi fyrir áramótin. Fólkinu var jafnframt bönnuð endurkoma til Íslands í fimm ár.