Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Þjófar handteknir í Reykjavík

31. janúar 2007

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í Reykjavík í gær en hann er grunaður um innbrotstilraun í bílasölu í austurborginni. Á svipuðum slóðum var fjórum dekkjum og álfelgum stolið undan bíl sem jafnframt var rispaður á báðum hliðum svo eitthvað hefur gengið á þar. Þá var karlmaður um fertugt handtekinn í húsi í vesturhluta borgarinnar en innandyra var þýfi.