Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tekinn tvisvar fyrir fíkniefnaakstur

26. nóvember 2013

Piltur um tvítugt var tekinn í tvígang fyrir fíkniefnaakstur í Reykjavík um síðustu helgi. Fyrst var hann stöðvaður í vesturhluta borgarinnar aðfaranótt laugardags og svo aftur í austurborginni rúmlega hálfum sólarhring síðar. Hann var afar ósáttur þegar lögreglan stöðvaði hann í seinna skiptið og líkti afskiptum laganna varða við einelti.