Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Talgervill notaður við fjársvik

18. maí 2026

Í lengri tíma hafa verið í gangi fjársvik þess eðlis að hringt er í fólk og á línunni er aðili sem segist vera frá Microsoft og að eitthvað sé að tölvu þess sem hringt er í. Í framhaldinu er viðkomandi leiddur í gegnum ferli við uppsetningu búnaðar í tölvu sinni sem gerir brotamönnum kleift að komast yfir fjármuni hans. Nú hefur sú breyting orðið á þessum svikum að bæði er hringt úr íslenskum símanúmerum og notaður er talgervill í samskiptunum. Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi og íslenska er töluð við þann sem reynt er að svíkja.

Telji fólk sig hafa orðið fyrir svikum af þessu tagi og hafa tapað fjármunum er því bent á að hafa tafarlaust samband við sinn viðskiptabanka til að fá ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu. Þá minnir lögregla á netbrotagáttina á island.is sem finna má undir „samfélag og réttindi“. Þar er bæði hægt að tilkynna netbrot til lögreglu sem og tilraunir til slíkra brota.