Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Synjað um framsal

20. desember 2007

Przemyslav Pawel Krymski, einn þeirra sem rauf farbann sem hann var úrskurðaður í af Héraðsdómi Suðurlands og staðfest var í Hæstarétti vegna gruns um aðild að nauðgun, var handtekinn af pólsku lögreglunni á landamærum Póllands og Þýskalands s.l. mánudag. Íslenska ríkið gerði kröfu um að hann yrði framseldur til Íslands en yfirvöld í Póllandi hafa nú upplýst um að pólsk lög heimili ekki framsal eigin þegna til annarra landa.