Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Svikahrappur á ferðinni

18. júní 2026

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist tvær tilkynningar um erlendan karlmann sem var á ferðinni í Árbænum í dag og falaðist eftir styrkjum fyrir góðgerðarsamtök. Í báðum tilvikum gaf maðurinn sig á tal við eldri borgara og leitaðist eftir styrk að upphæð kr. 2.000, en ekki hefur komið fram fyrir hvaða samtök. Maðurinn vildi ekki peningaseðla, bara greiðslukort og PIN númer og notaði símann sinn sem posa. Fólkið féllst á að styrkja málefnið, en svo kom í ljós að teknar voru út tvö þúsund evrur af kortum viðkomandi, en ekki 2.000 krónur íslenskar!

Lögreglan varar við manninum og hvetur fólk til að vera á varðbergi. Um hann er lítið vitað svo stöddu, annað en það að maðurinn var svartklæddur og í hvítum strigaskóm og talaði ensku.