Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Svik og prettir

10. apríl 2012

Eitt af því sem svikahrappar taka sér fyrir hendur þessi misserin er að hringja í fólk og bjóða fram aðstoð vegna tölvumála. Hjón á höfuðborgarsvæðinu fengu hringingu af þessu tagi en á hinum enda línunnar var maður sem þóttist vera starfsmaður Microsoft í Bretlandi. Hinn sami greindi frá því að villa hefði komið upp í tölvu þeirra hjóna og ætlaði maðurinn að vera svo vinsamlegur að leysa vandann. Það ætlaði maðurinn að gera í gegnum símann en fólkið átti fyrst að ræsa tölvuna og síðan að fá frekari leiðbeiningar frá manninum um hvernig það ætti að bera sig að til að losna við villuna í tölvunni! Að baki þessu bjó ekkert annað en að komast yfir upplýsingar hjá fólkinu svo hafa mætti af því fé. Hjónin í þessu tilviki létu ekki blekkjast en einfaldast er að skella á hringjanda þegar svona símtöl berast. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta tilkynnt um svona háttsemi með því að senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is