Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Styrkur til Suðurhlíðar þolendamiðstöðvar frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti

29. apríl 2026

Í dag var undirritaður styrktar samningur milli Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Suðurhlíðar en ráðuneytið styrkir Suðurhlíð um 20 milljónir króna til starfseminnar. Rut Sigurðardóttir, rannsóknarlögreglumaður og formaður stjórnar Suðurhlíðar, og Inga Dóra Jónsdóttir, teymisstýra Suðurhlíðar hittu Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og ræddu saman um starfsemi Suðurhlíðar og undirrituðu samninginn.

Hjá Suðurhlíð er unnið með þolendum ofbeldis á þeirra forsendum og þeim veittur stuðningur og ráðgjöf. Öll þjónusta Suðurhlíðar er á forsendum þolenda og þeim að kostnaðarlausu.

Suðurhlíð er samstarfsverkefni Lögreglustjórans á Suðurnesjum, Grindavíkurbæjar, Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar, Sveitarfélagsins Voga, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilsugæslunni Höfða, Keili, Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum og Sýslumannsins á Suðurnesjum.

Þolendamiðstöðin er rekin sem frjáls félagasamtök og því þarf að fjármagna starfið ár hvert og tryggir þessi styrkur að starfsemin geti haldið áfram næsta árið.