Stórfellt brot á lögum um ávana- og fíkniefni
6. ágúst 2026
Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar mál er varðar stórfellt brot á lögum um ávana- og fíkniefni.

Málavextir eru með þeim hætt að tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði þrjá aðila við komuna til landsins aðfararnótt 29. júlí sl. Við leit í farangri þeirra fundust pakkningar sem innihéldu 2,4 kg kókaíni. Hin grunuðu sem eru kólumbískir ríkisborgara komu frá Spáni og voru úrskurðuð í gæsluvarðhald til miðvikudagsins 5. ágúst sl. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fór fram með kröfur um framlengingu gæsluvarðhalds og úrskurðaði Héraðsdómur Reykjaness hin grunuðu í gæsluvarðhald til miðvikudagsins 12. ágúst nk.
Daginn eftir, fimmtudaginn 30. júlí sl., stöðvaði tollgæslan á Keflavíkurflugvelli tvo aðila sem einnig komu frá Spáni. Við leit í farangri þeirra fundust pakkningar sem innihéldu1,7 kg af kókaíni. Pakkningarnar reyndust vera samskonar og þær sem lagt var hald á deginum áður í fórum þremenninganna. Hin grunuðu sem einnig eru kólumbískir ríkisborgarar voru úrskurðuð í gæsluvarðhald til dagsins í dag 6. ágúst og mun lögreglustjórinn á Suðurnesjum leggja fram kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald.
Rannsóknardeild lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins sem er á frumstigi og er meðal annars unnið að því að upplýsa um tengsl málanna. Ekki verða veittar frekari upplýsingar á þessu stigi málsins.