Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Stöðubrot

8. júlí 2014

Nokkuð var um stöðubrot á höfuðborgarsvæðinu um helgina en lögreglan hafði afskipti af um 60 ökutækjum vegna þessa. Stórum hluta þeirra var lagt ólöglega við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og Skautahöllina, en gestir sem heimsækja Laugardalinn virðast ansi oft setja það fyrir sig að ganga stuttar vegalengdir, en á þessum slóðum er einmitt mikið af bílastæðum.

Sem fyrr hvetur lögreglan ökumenn til að leggja löglega, m.a. til að þeir komist hjá útgjöldum en sekt vegna stöðubrots er 5000 kr., en gjaldið rennur í Bílastæðasjóð.