Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Slys í sundhöll Selfoss

21. maí 2011

Rétt fyrir klukkan 13:00 í dag var kallað eftir aðstoð í Sundhöll Selfoss þar sem barn fannst meðvitundarlaust í innilaug sundhallarinnar. Endurlífgun hófst þegar, bæði af hálfu aðstandenda barnsins, starfsmanna sundhallarinnar, og sundlaugargesta þar sem voru meðal annars lögreglu-, sjúkraflutninga-, og slökkviliðsmenn. Barnið, sem er á sjötta aldursári var flutt á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut. Þegar þetta er ritað liggja ekki fyrir upplýsingar um líðan barnsins.