Þessi frétt er meira en árs gömul
Slökkvistarfi lokið, brunavettvangur afhentur lögreglu
1. nóvember 2018
Slökkvilið hefur nú afhent brunavettvang á Kirkjuvegi á Selfossi til lögreglu til rannsóknar. Enn eru að koma upp glæður í húsinu og því verður brunavakt áfram við vettvang. Lögregla og tæknideild eru að hefja vinnu á vettvangi en byrjað verður á því að tryggja milligólf vegna hrunhættu. Skýrslutökur af málsaðilum sem handteknir voru á vettvangi fara fram í dag.