Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Skýrsla starfshóps um ytri rýni vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga

13. maí 2026

Í dag kom út skýrsla starfshóps sérfræðinga um ytri rýni vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga.

Dómsmálaráðherra skipaði starfshópinn í nóvember 2024 með það hlutverk að fara yfir aðgerðir viðbragðsaðila vegna atburðanna á Reykjanesi.

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að viðbrögð við jarðhræringunum hafi verið eitt stærsta og flóknasta almannavarnaverkefni sem íslenskt samfélag hefur staðið frammi fyrir á síðari tímum, þar sem reynt hafi á samhæfingu, úthald og faglega getu viðbragðsaðila við síbreytilegar og krefjandi aðstæður.

Embætti ríkislögreglustjóra tekur undir mikilvægi þess að ákvarðanir og viðbrögð í stórum atburðum sem þessum séu rýnd með markvissum hætti svo draga megi lærdóm af reynslunni. Í skýrslunni koma fram ýmsar gagnlegar ábendingar um hvað betur megi fara. Embættið hefur þegar brugðist við fjölmörgum þeirra og áfram er unnið að frekari úrbótum.

Skýrsluna má nálgast hér.